Administrator
17.7.2007 17:20:35
Þann 30. júní s.l. var opnað nýtt skrifstofuhótel í Hveragerði...
Þann 30. júní s.l. var opnað nýtt skrifstofuhótel í Hveragerði. Það
er Byr Skrifstofuþjónusta sem mun annast rekstur
skrifstofuhótelsins að Austurmörk 4, en húsnæðið hefur allt verið
endurbyggt á glæsilegan hátt. Um er að ræða annað hótelið af þremur
sem ætlunin er að opna innan vébanda Sunnan3 verkefnisins. Fyrsta
hótelið var opnað á Selfossi í febrúar s.l. og í haust stendur til
að opna þriðja hótelið í Þorlákshöfn.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við
þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgar- svæðinu, en vilja og hafa tök
á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða
fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og
hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir
fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heima-byggð. Hér er
einnig um að ræða mögu-leika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í
lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft
jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í
tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
Vefstjóri
17.7.2007 17:20:35
Eins og sjá má hefur Sunnan3 vefurinn fengið andlitslyftingu með
nýrri heimasíðu...
Eins og sjá má hefur Sunnan3 vefurinn fengið andlitslyftingu með
nýrri heimasíðu. Opnun heimasíðunar og meðfylgjandi breytingar eru
fyrsta skrefið í átt að rafrænu þjónustutorgi sem er eitt af
menginverkefnum Sunnan3. Það er hugbúnaðarfyrirtækið Idega sem
annast alla þróun og hönnun við heimasíðuna og þjónustutorgið. Til
að byrja með mun heimasíðan fyrst og fremst hafa það hlutverk að
kynna Sunnan3 verkefnið og veita upplýsingar um stöðu mála. Ekki
verður því um neina gagnvirka þjónustu um að ræða fyrr en síðar í
sumar. Þá munu íbúar geta fengið sín eigin svæði gagnvart
sveitarfélögunum og notfært sér ýmsa rafræna þjónustu sem ekki
hefur verið í boði áður.
Administrator
17.7.2007 17:20:35
Þann 13. september var opnað skrifstofuhótel í Þorlákshöfn og er
það Steinavík ehf. sem tekur að sér að reka hótelið.
Þann 13. september var opnað skrifstofuhótel í Þorlákshöfn og er
það Steinavík ehf. sem tekur að sér að reka hótelið. Um er að ræða
þriðja hótelið sem ætlunin er að opna innan vébanda verkefnisins
Sunnan3 - rafrænt samfélag. Fyrsta hótelið var opnað á Selfossi í
febrúar s.l. og annað hótel var opnað í Hveragerði í lok júní.
Skrifstofuhótelið í Þorlákshöfn er til húsa að Unibakka 11.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við
þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á
því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða
fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og
hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir
fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð. Hér er
einnig um að ræða möguleika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í
lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft
jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í
tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
Administrator
17.7.2007 17:20:34
Sunnan3 - verkefni um rafrænt samfélag, óskar eftir samstarfsaðilum
um tilraun til reksturs þriggja skrifstofuhótela í sveitarfélögunum
Árborg, Hveragerði og í Ölfusi...
Sunnan3 - verkefni um rafrænt samfélag, óskar eftir samstarfsaðilum
um tilraun til reksturs þriggja skrifstofuhótela í sveitarfélögunum
Árborg, Hveragerði og í Ölfusi.
Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótels er að koma til móts við
þarfir íbúa sveitarfélaganna þriggja sem starfa á
höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á að vinna hluta sinnar
vinnu í heimabyggð. Leitað er eftir fullbúinni skrifstofuaðstöðu
með öflugu háhraðasambandi. Æskilegt er að húsnæðið sé rekið í
tengslum við annan rekstur til að tryggja lifandi starfsumhverfi og
einnig til að halda niðri rekstrarkostnaði. Ekki er skilyrði að
sami aðilinn sjái um rekstur hótelanna þriggja.
Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að
sækja vinnu fjarri heimabyggð, en einnig er stefnt að hagræðingu
fyrir vinnuveitendur, einkum í lækkun skrifstofukostnaðar.
Áætlað er að tilraunin standi í eitt ár og að þeim tíma liðnum
verður gerð úttekt á árangri hennar. Sunnan3 veitir fjárstuðning
til rekstursins á meðan að á tilrauninni stendur, en markmiðið er
að í framtíðinni verði skrifstofuhótelin sjálfbærar
rekstrareiningar.
Hér má finna kröfulýsingu vegna skrifstofuhótels.
Administrator
17.7.2007 17:20:34
Fyrsta Skrifstofuhótel á Íslandi tekur til starfa á Selfossi
fimmtudaginn 24 febrúar...
Fyrsta Skrifstofuhótel á Íslandi tekur til starfa á Selfossi
fimmtudaginn 24 febrúar. Um er að ræða fyrsta hótelið af þremur sem
ætlunin er að opna á Árborgarsvæðinu innan vébanda verkefnisins
Sunnan3 - rafrænt samfélag.
Skrifstofuhótelið er samvinnuverkefni Sunnan3 - rafræns samfélags,
Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands
(TRS). Skrifstofuhótelið verður staðsett í húsnæði Verkfræðistofu
Suðurlands á annari hæð í 'Kjarnanum' Austurvegi 3-5 á Selfossi og
þar verður opnunarathöfnin haldin.
Markmiðið með uppbyggingu Skrifstofuhótels er að koma til móts við
þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á
því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða
fullkomna skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi
vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótles eru augljósir fyrir
starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð. Hér er einnig
um að ræða möguleika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun
skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð
samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum
við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
Árni Magnússon félagsmálaráðherra mun opna Skrifstofuhótelið með
formlegum hætti. Árni er búsettur í Hveragerði og telst því vera í
markhópi þeirra sem geta nýtt sér Skrifstofuhótel, enda hefur hann
sótt vinnu til höfuðborgarsvæðisins á undanförnum árum. Að auki
munu talsmenn Sunnan3 verkefnisins og rekstraraðilar
Skrifstofuhótelsins flytja ávörp og kynna hugmyndafræðina á bak við
skrifstofuhótelið og Sunnan3 verkefnið almennt.
Frekari upplýsingar er að finna á: www.sunnan3.is eða hjá
verkefnisstjóra Sunnan3, í síma 6931533, netfang:
siggi@sunnan3.is
Administrator
17.7.2007 17:20:34
Fyrsta skrifstofuhótel á Íslandi var opnað á Selfossi fimmtudaginn
24 febrúar...
Fyrsta skrifstofuhótel á Íslandi var opnað á Selfossi fimmtudaginn
24 febrúar. Rekstur skrifstofuhótels er samvinnuverkefni Sunnan3 -
rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og
rafeindaþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið er staðsett í
húsnæði Verkfræðistofu Suðurlands í 'Kjarnanum' á Selfossi, þar sem
áður voru skrifstofur KÁ.
Markmiðið með rekstri skrifstofuhótels er að koma til móts við
þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja
vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna
skrifstofuaðstöðu fyrir 5 manns, með öflugu háhraðasambandi og
hvetjandi vinnuumhverfi.
Fjöldi gesta kynnti sér aðstæður og þjónustu skrifstofuhótelsins á
sérstakri opnunarathöfn s.l. fimmtudag og voru þeir ánægðir með
þessa nýjung. Orri Hlöðversson bæjarstjóri í Hveragerði og fromaður
verkefnisstjórnar Sunnan3 bauð gesti velkomna, Árni Magnússon
félagsmálaráðherra flutti ávarp og Sigurður Tómas Björgvinsson
verkefnisstjóri Sunnan3 og Páll Bjarnason framvkæmdastjóri
Verkfræðistofu Suðurlands kynntu hugmyndina á bak við rekstur
skrifstofuhótels.
Administrator
17.7.2007 17:20:33
Sunnan3 hefur komið á samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um
þarfagreiningu og hugsanlega uppbyggingu rafrænnar grunngerðar á
starfssvæði verkefnisins...
Sunnan3 hefur komið á samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um
þarfagreiningu og hugsanlega uppbyggingu rafrænnar grunngerðar á
starfssvæði verkefnisins. Til að byrja með mun OR aðstoða Sunnan3
við tæknilega þarfagreiningu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á
grunnnetinun. Ákveðið var að stofna sérstakan ráðgjafahóp um
tæknileg málefni verkefnisins og mun Þorleifur Finnsson
framkvæmdastjóri nýsköpunarsviðs vera fulltrúi OR í hópnum. Aðrir í
hópnum verða Ásbjörn Blöndal framkvæmdastjóri framkvæmda- og
veitusviðs Árborgar og Júlíus Pálsson framkvæmdastjóri TRS á
Selfossi, en fyrirtækið hefur verið aðili að Sunnan3 frá upphafi.
Orkuveitan er tilbúin til þess að kalla til sérfræðinga á ýmsum
sviðum við þessa þarfagreiningu. Litið verður á vinnu OR sem
framlag þeirra til verkefnisins, án frekari skuldbindinga af hálfu
Sunnan3.
Administrator
17.7.2007 17:20:33
Ákveðið hefur verið að Sunnan3 leggi til fjármagn og faglega
ráðgjöf í samstarfsverkefni grunnskólanna þriggja í Árborg um
rafræna skráningu skólamáltiða á netinu...
Ákveðið hefur verið að Sunnan3 leggi til fjármagn og faglega
ráðgjöf í samstarfsverkefni grunnskólanna þriggja í Árborg um
rafræna skráningu skólamáltiða á netinu. Um er að ræða aukna
þjónustu við forleldra og nemendur á grunnskólastigi í framhaldi af
því að farið var að bjóða upp á heitan mat í hádeginu í
grunnskólunum í Árborg. Samið hefur verið við Vef hf um þróun á
skráningarkerfi fyrir internetið þar sem foreldrar geta skráð börn
sín í mat og morgunhressingu til styttri eða lengri tíma. Vonast er
til að af þessu hljótist nokkuð hagræði fyrir nemendur, foreldra og
starfsfólk skólanna, því þar með þarf ekki lengur að senda nemendur
með miða heim og handvinna svo skráningunna í skólanum. Gert er ráð
fyrir að kerfið verði tilbúið til notkunar í lok nóvember þannig að
foreldrar geti notfært sér rafræna skráningu fyrir vorönnina.
Jafnframt var ákveðið að boðið verði upp á sömu rafrænu þjónustu í
Hveragerði og Ölfusi þegar boðið verður upp á skólamáltíðir þar á
komandi skólaári.
Administrator
17.7.2007 17:20:29
Sunnan3 áformar að gefa íbúum kost á að sækja námskeið í almennri
tölvunotkun og notkun rafræns þjónustutorgs á næstunni. Námskeiðin
verða haldin í samvinnu við Fræðslunet Suðurlands, og er þeim fyrst
og fremst ætlað að hjálpa þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í
tölvunotkun og öðrum þeim sem telja sig á grunnþjálfun í
tölvunotkun að halda. Meðal þess sem notendur ættu að geta eftir
námskeiðið er að senda tölvupóst, ferðast um internetið, notað
heimabanka, skrifað bréf í Word o.fl. Í tengslum við námskeiðin
verður gefin út sérstök kennslubók um tölvunotkun fyrir byrjendur
þar sem m.a. verða leiðbeiningar um notkun rarfæns þjónustutorgs
Sunnan3. Íbúar geta óskað eftir að fá bókina senda með því að skrá
sig inn í þjónustutorgið og senda skilaboð til síns sveitarfélags.
Administrator
17.7.2007 17:20:29
Rafrænt þjónustutorg fyrir íbúa Árborgar, Hveragerðis og Ölfus var
opnað í dag. Með rafrænu þjónustutorgi eignast íbúar sína eigin
vefsíðu hjá sveitarfélaginu. Mjög einfalt er að sækja um
notendanafn og lyilorð, og til þess að tryggja fullkomið öryggi fá
íbúar lykilorðin send í netbankann sinn. Þeir sem ekki hafa aðgang
að netbanka fá upplýsingarnar sendar með bréfi. Á þjónustutorginu
geta íbúar kannað stöðu fjármála og haldið utan um sín samskipti
við sveitarfélagið, séð nýjustu skilaboð og spjallað beint við
ákveðna starfsmenn. Einnig hafa þeir beinan aðgang að
atburðadagatali, veðrinu, fjölmiðlum og annari gagnlegri þjónustu.
Nú geta íbúar sent inn umsóknir með gagnvirkum hætti beint af
þjónustutorginu. Allur ferill og afgreiðsla umsóknarinnar er
sjálfvirkur sem sparar tíma við innslátt, vinnslu og flýtir fyrir
ákvarðanatöku. Til að byrja með verður hægt að senda inn umsóknir
um grunnskóla, frístundarheimili, skólamáltíðir, tónlistarskóla og
leikskóla. Hér er um að ræða tímamót í rafrænum samskiptum
sveitarfélaga og íbúa. Það sem greinir þetta þjónustutorg frá
sambærilegum kerfum er að þarfir íbúanna eru settar í forgang og
þeir fá þannig fullkomið sjálfsafgreiðslukerfi í hendurnar.
Administrator
17.7.2007 17:20:28
Um leið og rafræna þjónustutorgið var opnað almenningi var
gefinn út vandaður kynningarbæklingur um þjónustuna og nýjungarnar
sem þar er að finna. Bæklingnum var dreift inn á hvert heimili í
Árborg, Hveragerði og Ölfusi.
Á baksíðu bæklingsins er að finna góðar leiðbeiningar um það
hvernig nýjir notendur skrá sig inn á þjónustutorgið og hvernig
þeir fá notandanafn og lykilorðið sent. Þú getur nálgast bæklinginn
á rafrænu formi með því að smella hér.
Administrator
17.7.2007 17:20:27
Sveitarfélögin þrjú, Árborg, Ölfus og Hveragerðisbær efna til
tölvunámskeiða fyrir almenning.
Námskeiðin eru ætluð fólki á öllum aldri sem telja sig þurfa á
grunnþjálfun í tölvunotkun að halda. Meðal þess sem farið verður
yfir er notkun tölvupósts, internetið og ritvinnsla. Einnig verður
lögð áhersla á að kenna fólki á að notfæra sér rafræna þjónustu
sveitarfélaganna á www.sunnan3.is Þar er hægt að
sækja um ýmsa þjónustu sem er í boði hjá sveitarfélaginu þínu, t.d.
skólamáltíðir, leikskóla, og lagt fram fyrirspurnir um margvísleg
atriði og fengið svör við þeim um hæl, skoðað álagningu
fasteignagjalda og margt fleira. Þetta getur sparað ferðir á
bæjarskrifstofurnar eða á aðrar stofnanir. Rafrænt þjónustutorg
tölvunnar veitir þér aðgang að upplýsingum og þjónustu.
Á námskeiðinu lærirðu hvernig á að fara að: auðvelt – þægilegt –
nytsamlegt.
Nýttu þér þjónustuna. Eignastu þína eigin vefsíðu hjá
sveitarfélaginu þínu.
Staður og tími:
Grunnskólinn í Þorlákshöfn: 3. og 5. okt. kl. 19.30-21.40
Vallaskóli Selfossi: 10. og 12. okt. kl. 19.30.-21.40
16. og 17. okt. kl. 19.30-21.40
Barnaskólinn á Eyrarbakka/Stokkseyri: 10. og 12. okt. kl.
19.30-21.40
Grunnskólinn í Hveragerði: 11. og 16. okt. kl. 19.30-21.40
Verð: 1000 (kennslubók innifalin)
Innritun í síma 480-8155
Námskeiðin eru samvinnuverkefni Sunnan3 og Fræðslunets
Suðurlands